Friday, November 07, 2003

Meistarafamb

Framundan er meistarafamb með núnverandi og fyrrum meistaraflokksleikmanna Skallagríms. Um er að ræða leikmenn sem hafa unnið í spilinu Fumbulfambi sem spilað hefur verið á hverju ári meðal leikmanna Skallagríms undanfarin 5-6 ár. Þarna verða mætti Halli Hinna, Valdi Kriss, Auddi Blöndal, Himmi Hákonar, Andrés Jóns, Finni Jóns, Maggi og ég. Það er nokkuð ljóst að hart verður barist enda veglegur farandgripur og eignabikar í verðlaun. Gríðarlegur undirbúningur fer í slíkar keppnir og hafa farið margir tímar í lestur orðabóka og samheitaorðabóka. En leikar hefjast kl 17:00 á laugardag og má reikna með að úrslit verða ráðin um kl. 21:00.