Friday, November 04, 2005



Ekki veit ég hvað andskotinn vinir mínir eru að gera á erlendum vettvangi...
Þær sögur fóru af mönnum þegar þeir héldu af landi brott að þeir væru í námi en þegar maður fer að vafra á veraldarvefnum kemst maður að öðru. Þessi mynd fannst til dæmis þegar ég sló upp leitarorðinu "slut" á google.




Þegar ég hélt áfram leitinni fann ég mynd af Einar Guðmari og Skorra í Ungverjalandi. En Einsi skellti sér í þriggja vikna æfingaferð fyrir heimsmeistaramótið í iðjuleysi. Þar sem að Einsi er handhafi Rabbans fær hann sjálfkrafa þátttökurétt á mótið. Mun kappinn keppa í opnum flokki og í flokki einstaklinga með undir 10.000 krónur í árslaun. Greinilegt er á myndinni að nákvæmlega ekkert hefur verið aðhafst í Ungverjalandi í þrjár vikur og greinilegt að Skorri hefur er í fínu formi að gera nákvæmlega ekki neitt. Hefur heyrst að Skorri hafi hafnað 3ja ára atvinnuleysisbótasamningi frá Verkalýðsfélagi í Debre, þar sem hann nennti ekki að skrifa undir.